Bloggfærslur mánaðarins, júní 2006

Gott mál

Þette eru góðar fréttir. það er gott mál og nauðsynlegt að hafa vakandi auga með vetrarumferðinni. Fólk verður að komast leiðarsinnar svo hægt sé að sinna brýnum erindum. Fólk á ekki að dæmast til kyrrsetu þó ofankoma færist í vöxt. Vissulega er af sem áður var, að því sem næst farbann gengi í gildi við fyrstu snjóa. Samt verðum við að muna að það getur snjóað á Íslandi hvort sem vegirnir eru uppbyggðir eður ei.
mbl.is Aukin vetrarþjónusta hjá Vegagerðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ja hérna hér

Dregur úr væntingum um leið og væntingavísitalan hækkar. Vissulega er 4,46 prósenta hækkun vísitölunnar minni breyting en u.þ.b. 23% lækkun sem átti sér stað fyrir um 3-4 mánuðum síðan. Er þetta framlag Morgunblaðsins til stöðuleika í efnahagslífinu, að tala niður væntingarnar?

Þessi frétt birtist eftir að tilkynnt var að Ríkisstjórnin myndi ekki hraða byggingu hátæknisjúkrahúss.
mbl.is Dregur úr væntingum neytenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðræðan á Íslandi

Nú er spurning hvort þetta sé nóg til þess að menn fari að tala um iðandi straum(s)milða? eða er þetta bara til þess að gefa Dagsbrún straum?
mbl.is Straumur kominn með rúm 10% í Dagsbrún
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvammstangi á kortinu

Setrið er skemmtileg viðbót við þá menningartengdu ferðaþjónustu sem ætíð verður mikilvægari og mikilvægari.

Meðan við erum enn sólgin í upphafningu erlendra manna og kvenna, hlýtur, fyrir framtíð íslenskrar menningar, að vera nauðsynlegt að gera hinum ýmsu kimum íslenskrar menningar skil, og ennþá brýnna að kynna kimana fyrir útlendingum, svo þeir geti dáðst af, og þá gætu Íslendingar tekið við sér og endurnýjað kynnin við gömul gildi.

Kanadískur fræðimaður, hvers nafn ég man ekki nú rétt í þessu, sagði við mig í hneykslunartón, þar sem ég minntist ekki að hafa borðað súrsaða selshreifa, en sagðist þó hafa smakkað selsspik að það besta sem hægt væri að gera fyrir kanadískan sjávarútveg væri að hver Kanadamaður borðaði Selsborgara í það minnsta vikulega, Þannig væri hægt að stemma sitgu við útbreiðslu orma og draga úr ásókn sela í fiskistofna.

Verður fróðlegra að kíkja í heimsókn á Hvammstanga fyrir vikið.
Leirburði dagsins er sleppt að þessu sinni þó selalátur rími við slátur og lýsi við hýsi.

 


mbl.is Samgönguráðherra opnar Selasetur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óábyrgt?

Í síðustu viku komust samtök atvinnurekenda og samtök ákveðinna starfsmanna atvinnurekenda, e.þ.s. aðilar vinnumarkaðarins að samkomulagi sem ríkisstjórnin liðkaði fyrir með fyrirheitum um aðgerðir.

Nú hefur, einn aðili vinnumarkaðarins, einn atvinnurekandi, félagi í samtökum atvinnulífsins; Vátryggingafélag Íslands, seilst nokkuð langt. VÍS virðist ætla að reyna á þolrif þjóðarinnar með boðuðum iðgjaldahækkunum, sem hafa munu áhrif á vísitöluneysluverðs - verðbólgu. Ég skora á þá sem keppa við VÍS að fyrlga ekki fordæmi Vátryggingafélagsins, heldur axla ábyrgð og reyna frekar að stemma stigu við verðlagsþróuninni með því að bjóða betur, herða samkeppnina.

mbl.is VÍS hækkar iðgjöld 1. ágúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju

Til hamingju Ísland
Til hamingju Íslendingar
Til hamingju Háskóli Íslands
Til hamingju íslenskt þjóðfélag
Til hamingju íslenskt efnahagslíf
Til hamingju Sigrún Dóra og hinir 956 kandídatarnir
Til hamingju nýjir kennarar


mbl.is 1.522 fá prófskírteini í Laugardalshöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skárra, og þó...

Morgunblaðið má þó eiga það að hafa komist frá fyrirsögninni, skammlaust. En:

 Þá hefur áætlunum hennar fyrir morgundaginn verið aflýst en til stendur að hún leggi af stað í opinbera heimsókn til Ítalíu, Páfagarðs og Spánar á laugardag.

Áætlununum var frestað, ég skil það, en stendur enn til að frú Arroyo haldi yfir hálfann hnöttinn, með verki í kviðarholi, ég held ekki.

Þá hefur áætlunum hennar fyrir morgundaginn verið aflýst en til stóð að hún legði af stað í opinbera heimsókn til Ítalíu, Páfagarðs og Spánar á laugardag.

Held ég að hefði verið betra.

Annars er það merki um misjafnt ástand á Fróni og í Filippseyjum, að þegar landsmóðirin, höfuð ríkisvalds í Filippseyjum veikjist verða allir á tánum en þegar Forsætisráðherra Fróns veiktist um árið, þá kepptust andstæðingar hans við að óska honum skjóts bata, sama gerðist í vetur þegar Steingrímur J velti bíl, þá fór mikil fyrir hlýhug og bata óskum. Ekki var rokið upp og bent á ímyndaða veikleika sem birtust í þessum aðstæðum. Engin ástæða til að hafa áhyggjur af upplausn, uppreisn eða einhverjum uppvöðslusömum mönnum sem gætu hafa reynt að nýta sér óvissu ástandsins eins og menn nú óttast í Filippseyjum.


mbl.is Viðbúnaðarstig hækkað vegna veikinda forseta Filippseyja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vígvæðing - ógn og skelfing

Það er nú ekki beint gaman til þess að hugsa að menn bisi við að setja sig í startholur fyrir einhverskonar átök. Vissulega er mikið tekist á á ýmsum vettvangi.

Nú þegar Hinir bestu, mestu, snjöllustu og knattfærustu menn heimsins keppast um að yfirspila hvern annann, má rifja upp að daginn eftir að Japanir báru sigur orð af Norður Kóreumönnum á knattspyrnuvellinum, það var jú einmitt í aðdraganda sömu keppni og margur maðurinn festir ekki svefn fyrir nú um stundir, var stórafréttin sú að stjórnvöld á norðanverðum Kóreuskaganum gengust við einhverjum hluta þess sem þau höfðu verið sökuð um. Prísaði ég mig sælan með að tuðran hafði sloppið einusinni inn framhjá markmanni Japana, annars hefði e.t.v. forsíðu frétt blaðanna þann dagionn verið öllu hörmulegri hefðu þau á annað borð haft starfhæfar prentsmiðjur að lokinni sprengju árás Kims og félaga. 

Kims kauðar ógna,
fremur en verjast spyrnum
í egni möskva.

mjög Árlalenskir
glöddust að kveldi, hræddust
atómið með morgni

Leikur á velli,
hlegið og grátið í senn,
lífið hans utan.

Sunnan ræmu sjá
menn sína sækja, kætast,
í norðri ei bros.

Nú brölta fleiri
Persar víst prúðbúnir enn
spila í friði

Norður Kórea
kát hrekkir aðra, víða,
sumar sem vetur.
 
mbl.is Bandaríkjamenn vara stjórnvöld í Norður-Kóreu við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að sjá þetta

Ég held að hvað sem mönnum finnist um stjórnkerfi fiskveiða vorra, þá færi betur á því að segja Grímseyingar kanna kosti mögulegra viðbragða við hugsanlegum kvótamissi
ellegar
Grímseyingar kanna möguleg viðbrögð við hugsanlegum kvótamissi
Eða þá
Grímseyingar skoða viðbrögð við hugsanlegum kvótamissi


mbl.is Grímseyingar skoða mögulegan kvótamissi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir, Góðar fréttir

Já, rétt eins ummæli Ólafs G. Einarssonar þá þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins um þá staðreynd að varaformaður Sjálfstæðisflokksins og Borgarstjóri hygði á framboð til formans Sjálfstæðiflokksins þá um vorið, 1991, voru margspiluð, sundur og saman af Spaugstofumönnunum; "Slæmar fréttir, slæmar fréttir" þá segi ég með þó eilítið meiri gleði andhverfu þess sem síðar menntamálaráðherra þá sagði.

Því það eru sannarlega góðar fréttir að skynsemin fái að ráða, að hópur fólks héðan og þaðan úr heiminum hafi með meirihluta atkvæða stutt skynsamlega yfirlýsingu.

Hvalveiðibannið, sem augljóslega átti að vera tímabundin ráðstöfun, er ekki lengur nauðsynlegt.

Orð að sönnu!

Nú held ég að Japanir hafi sýnt og sannað að þeir eru þess megnugir að axla þá ábyrgð sem fylgir setu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.


mbl.is Ályktun samþykkt um að hvalveiðibannið sé ónauðsynlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband