Frábært framtak

hjá Stanislaw Bartoszek, hreint út sagt frábært framtak hjá Stanislaw. Má ég segja gott einkaframtak? Bókarútgáfan verður væntanlega til góðs fyrir Pólverja sem koma til Íslands. Til hamingju, nú vanhagar mig um eintak af vasaorðabókinni til þess að reyna að slá um mig með "hamingju óskum" á pólsku.

---

Annað og fréttinni reyndar nookuð fjarskylt, á hve mörgum opinberum tungumálum aðildarríkja Evrópusambandsins hafa einhverjar Íslendingasögur verið þýddar? Árið 2001 fann ég enga Íslendingasögu á spænsku og ekki heldur árið 2003, hefur ástandið breyst?
mbl.is Skólaorðabók gefin út til að auðvelda Pólverjum íslenskunám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

Þekki það ekki, en hér á heimilinu er til Njála á Eistnesku.  Eistlendingar eru margir ákaflega stoltir af því að land þeirra komi við sögu í Njálu.  En þar er sagt frá því er Gunnar ásamt bróður sínum fer í víking austur og kemur við á Eysýslu.  Líklegast verður að telja að þar sé um Saaremaa að ræða, en það þýðir einmitt á Eistnesku, Eysýsla eða Eyjaland.

Kveðjur

G. Tómas Gunnarsson, 5.12.2006 kl. 02:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband