Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

bein lína

Menn sem líta á verkefni í samgöngumálum sem bætur, þurfa opna augun. Vissulega eru holufyllingar mikilvægur þáttur í viðhaldi vega, en fyrst og fremst þarf að mæta aukinni umferð með stórtækum framkvæmdum.

Tvöföldun suðurlandsvegar er í því ljósi smámál, hvenær svo sem þeirri framkvæmd kemur til með að ljúka. Við þurfum, til framtíðar, að tvöfalda í það minnsta hringveg og fjölförnustu stofnvegi, ef ekki bara alla stofnvegi, með aðskildum akstursstefnum. Ef stefnan verður áfram sett á það að taka á móti einni milljón ferðamanna á ári, væri æskilegt að ferðamenn líkt og heimamenn geti komist klakklaust á milli staða. Eftir 50 ár munu Íslendingar varla sætta sig við þá vegi sem við nú höfum. Betra er að byrgja brunninn áður en barnið dettur. Mikið hefur verið gert, en það er margt sem bíður. Það sem í eina tíð var mikil samgöngubót getur reynst farartálmi að nokkrum tíma liðnum. Þó má nýta flest til framtíðar.

Hægt væri að nota þau tækifæri sem núverandi framkvæmdir bjóða uppá. Nú þegar er unnið að finna fjölförnum vegum betra vegarstæði. Með nýrri vegarlagningu er beygjum hvar hættulegt getur verið að mæta bíl sumstaðar sleppt á öðrum stöðum er komið á fót nýrri leið framhjá einbreiðri brú. 

Nú má koma til móts við þörfina um tvöföldun í þjóðveganna þar sem framkvæmdum við nýja slóð er nýlega lokið eða þá þar sem þær standa enn yfir með því að nota gamla veginn fyrir umferð í aðra áttina en og nota þá nýja veginn fyrir umferð í gagnstæða átt. Vissulega eru einbreiðar brýr ekki jafn þægilegar yfirferðar og tvíbreiðar brýr. En það yrði varla eins hættulegt að aka vestur gamlaveginn í Norðurárdal í Skagafirði ef öll umferð inn dalinn til austurs og upp á Öxnadalsheiði lægi um nýja veginn sem liggur neðar/sunnan við gamla veginn. Vissulega þyrftu vegfarendur að gæta að akstri sínum vegna þess að enn eru brýrnar einbreiðar, þó væri ekki sama hætta á árekstri á eða við brýrnar atarna þar sem umferðin upp á Öxnadalsheiðina lægi neðar. Svipuðum vinnubrögðum mætti e.t.v. beita víðar þar sem ný vegarlagni er ekki svo fjarri hinum gamla og slitna vegi. Samgönguráðherra, sem væri annt um landsbyggðina, gæti séð sér táknrænan leik á borði með því að leggja nýjar og beinar brautir hringvegarins sunnan við núerandi hlykkjóttan veg.


mbl.is Suðurlandsvegur verður tvöfaldaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hetja dagsins

Hetja dagsins í dag ók á sínum fjallabíl í það minnsta eftir sæbrautinni frá Holtavegi að Dalsbraut rétt um klukkan átta í morgun. Vel má vera að ég hefði verið vinalegri ef ég hefði spurt hetjuna að nafni, en þá væri hetjan ekki nafnlaus. Miskunn samur samverji.

Bröltið að byrja

Það er ekki hlaupið að því að koma sér fyrir á nýjan leik á góða landinu. Fyrir utan það að átta sig á nýjum vinnustað og verkefnunum þar, hefur allnokkur orka farið í undirbúnings pappírsvinnu fyrir Patriciu, þá er ekki laust við það að mér létti nokkuð þó það hefði rignt hressilega, til að hreinsa andrúmsloftið, 23. júlí.

Ég hef gert meira en ég ætlaði mér en þó ekki nándar nærri allt sem vildi hafa gert á fyrstu 4 mánuðunum eftir endurkomuna. Ég hefði getað heimsótt fleiri vini og oftar, en það verður bara að bíða. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband