19.6.2008 | 07:44
Fannar Logi Jóhannsson 1987-2008
Fannar frændi minn. Fannar systursonur minn verður borinn til grafar í dag. Fannar var góður drengur. Fannar var nokkur grallari, en uppátæki hans sem ég varð vitni af voru græskulaus. Fannar vakti óskipta athygli á veitingastað í Visby á Gotlandi þegar hann tveggja og hálfs árs var svangur og var þreyttur á bið eftir þjónustu og gaf það tilkynna með nokkrum krafti og á góðri íslensku, það góðri að allir sænsku þjónarinir skyldu samstundis hvernig væri í pottinn búið og brugðust hratt við.
Fannar hafði mikinn áhuga hvorttveggja á bílum og knattspyrnu, með knattspyrnuiðkun sinni vakti hann upp keppnisskap afa síns, sem hvatti hetjuna óspart í keppni á Akureyri.
Ég man ekki eftir öðru en gleði og kæti væri alltaf mikil ef Fannar var nálægur.
Síðan í júlí í fyrra hefur hugur minn verið hjá Fannari og fjölskyldunni allri. Vonir okkar, bænir okkar og óskir okkar rættust ekki.
Mannlegur máttur getur verið svo sorglega vanmáttugur.
Við geymum öll minningu Fannars Loga.
Ég sakna Fannars.
Guð blessi og styrki Tótu, Jóa & Þorstein, Daníel og Bergdísi.

Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Ég votta ykkur samúð mína
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 08:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.