Ekkert þokast í Hvalfriðunarráðinu

 Mótsögnin sem falist hefur í samþykktum Alþjóðahvalveiðiráðsins síðustu ár held ég að skeri sár í hvern skynsaman mann. Það verður spurning hvort hvalveiði þjóðunum verði úthýst úr "Alþjóðlega Hvalveiðiráðinu" IWC þegar þær stofna Raunverulega hvalveiðiráðið RWC.

 Það er ekki ein hvalategund í hafinu þó að af áróðrinum væri hægt að halda það. 

 Fyrst voru það hvalveiðarnar nú er þrengt að úthafsveiðum svo verða það togveiðar og friðunar menn munu ekki hætta fyrr en síðasta haffæra fiskiskipið verður selt í brotajárn, það stefnir í að einungis þeir ríku geti veitt í frístundum.


mbl.is Japanir vilja nýjan vettvang til að ræða hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áframhaldandi akureyrsk umræðustjórnmál

Þeir hafa í það minnsta ekki hætt að tala saman. Það er spurning ef þeir eru ekki enn farnir að ræða málefnin eða málin svo nokkru nemi hvort umræðan sé á þeim nótum að Skólameistari VMA megi ekki við því að missa áfangastjóra VMA í annað starf.

Hvað vitum við um orsakir yfirlýsinga tregðunnar?


mbl.is Viðræðum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks á Akureyri haldið áfram eftir hádegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umræðustjórnmál

Svei mér þá ef umræðustjórnmál eru ekki farin að grassera á Akureyri. Bæjarfulltrúar hittast til að ræða hugsanlega myndun nýs meirihluta. Hvað gerist....

Jú þeir láta það spyrjast út að málefnin hafi ekki verið rædd af neinni alvöru og að því samræðuleysi slepptu hafi ekkert verið ákveðið nema það að hittast aftur. Ég held að bæjarbúar hljóti að bresta úr spenningi hvað og hverju. 


mbl.is Sjálfstæðismenn og Samfylking hefja viðræður á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband