Þola

.... Samfylkingarmenn þessa bið? Einn mánuð í viðbót? Kristján Þór sagði í samtali á Stöð 2 eða var það á Nýju Frétta Stofunni að samfylkingarmenn væru óþreyjufullir, biðu kannski í ofvæni eftir því að Kristján Þór stigi upp úr bæjarstjórastóli.

Ætli Kristján Þór ætli sér að æfa sig á forsetastóli í bæjarstjórn, fyrir hugsanlega setu á forsetastóli Alþingis?


mbl.is Sigrún Björk verður bæjarstjóri á Akureyri í byrjun næsta árs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira svona

Það er öryggisatriði símasamband sé sem víðast. Það er öryggisatriði að vegfarendur geti hringt og beðið um hjálp á slysstað.
---
Aftur að prófkjörinu.
Sigurjón Benediktsson kom með þarfa ábendingu um kostnað við prófkjör sem ég tek heilshugar undir. Hver frambjóðandi í prófkjöri flokks, getur notað helming þeirra fjárframlaga sem stuðningsmenn hans veita honum til þess að koma sjálfum sér á framfæri, hinn helminginn leggur frambjóðandinn í sameiginlegan sjóð flokksins til kostunar kosningabaráttu flokksins, þar með þarf hið opinbera lítið að leggja af mörkum. Ef menn safna ekki fjárframlögum frá stuðningsmönnum til kostunar egin kynningar, þá greiði hver eftir sem áður jafn mikið í sjóð síns flokks og hinn sami myndi greiða fyrir eigin kynningu. - (viðbót: Það er varla við hæfi að kalla Sigurjón mínípilsamann, úr því að seta hans á salerni dugði ekki fyrir hann til að hljóta náð fyrir augum stuttpilsadeildarinnar.)
---
Hvort heldur sem er, að Steinþór Þorsteinsson varaformaður félags stúdenta við Háskólann á Akureyri hafi gengið í sjálfstæðisflokkinn um leið og hann hafði aldur til, ellegar hafi hann einungis gengið í flokkinnum það leiti sem hann hóf nám sitt við Háskólann á Akureyri – það gildir einu. Augljóst má telja að sköpum hafi skipt að stjórnir félaga ungra sjálfstæðismanna á Akureyri hafi haft stjórn á gangi mála að þessu sinni, allt frá því að ályktun þeirra var samþykkt á kjördæmisþingi flokksins. Það er vel.
Það er ljóst að Steinþór naut góðs af því samstarfi félaga ungra sjálfstæðismanna að einungis einn úr félögum ungra sjálfstæðismanna bauð sig fram í prófkjörinu að þessu sinni. Þeim sem er annt um framgang ungs fólks innan flokksins hlýtur að vera ljós sú breyting til batnaðar sem samstarfið er. Í það minnsta voru ekki fjórir stjórnarmenn og einn fyrrum formaður að bítast um sömu atkvæðin, sem “utanaðkomandi” ungliði gerði og tilkall til. Jafnframt er erfitt fyrir flesta að segja að ÁRATUGAstarfi Björns, Sigurjóns og Kristins hafi verið hafnað, nema kannski yfirritsstjóra Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, ef hann vill vera samkvæmur sjálfum sér. Eina niðurstaðan fyrir áðurnefndan yfirritsstjóra sem hefði ekki haft höfnun á starfi frambjóðanda í þágu flokksins hefði verið sú að Björn Jónasson myndi leiða listann. Samt sem áður er líklegt að sumir hafi viljað sjá Sigríði Ingvarsdóttur setjast á nýjan leik á þing og því kosið hana fremur en Björn, hver veit?
---
Hægrimaður úr Höfðakaupsstað var ófáanlegur til að skrifa stafkrók um stefnuna góðu í Hægrisíðuna forðum af ótta við að orð hans myndu elta hann uppi þegar fram í sækti.
---
Frambjóðandi Benediktsson lét í ljós þá staðreynd sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú opinberað að frambjóðandi Pétursson hafi hlotið fleiri atkvæði en Benediktsson. Samt sem áður er frambjóðandi Pétursson með heimilisfesti í fámennara og smærra sveitarfélagi en frambjóðandi Benediktsson.

Í því sambandi má spyrja er málefnalegt að kjósa eftir búsetu?
Er málefnalegt að kjósa sveitunga sína og ætla íbúum annarra sveitarfélaga að kjósa íbúa sinna sveitarfélaga?
Til hvers þarf þá prófkjör ef hægt væri að raða á lista eftir búsetu.
Akureyri
Fjarðarbyggð
Norðurþing
Fljótsdalshérað
Fjallabyggð
Ef fleiri en einn byði sig fram í hverju sveitarfélagi þá myndi hlutkesti ráða – ástlausasti frambjóðandinn myndi að öllum líkindum hreppa hnossið. Slíkt væri einfalt fyrir Kjörnefnd sem ber að gera tillögu að þeir fimm skipi efstu sætin á framboðslista Sálfstæðisflokksins, eða hvað?
---
Nei hugmynd Sigurjóns er betri, menn auglýsi eins mikið og þeir vilja en styrki sinn flokk um jafnháa fjárupphæð og prófkjörsþáttakan myndi kosta.
---
Annars þykir mér leitt að ritstjóri Íslendings geti ekki birt sambærilegar upplýsingar á vefnum og birst hafa á vef flokksins um niðurstöður í öðrum prófkjörum flokksins.
---
Vegna míns fyrra blaðurs þykir mér vert að spyrja frú Þorgerði hvort Grímseyingar séu fullsæmdir af niðurstöðu prófkjörsins.
mbl.is Síminn eflir GSM samband sitt á Norðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hafa kommúnistar [...] boðið Framsóknarflokknum upp á samvinnu"

Ég játa að ég man ekki nákvæmlega eftir þessum tíma, enda ekki fæddur, en mig minnir að hafa heyrt að Framsóknarmenn og Sósíalistar og málfundandi jafnaðarmenn og einhverjir fleiri sem þá stóðu utan þings hafi sammælst um, á þessum tíma, að ef þessir aðilar myndu ná meirihluta, myndu hinir sömu virða að vettugi samkomulag sem gert var við Breta um 12 mílna landhelgi. Hvort það samkomulag, sem varð til þess að Hannibal mátti hlera 1961, hafi átt einhvern þátt í stefnumörkun stjórnar Ólafs Jóhannessonar um 50 mílur ætla ég ekkert að segja um því ég hef heimildarmann minn ekki í kallfæri.
Hannibal sat í ríkisstjórn til Þorláksmessu að vetri 1958, án þess að það sé höfuðatriði, því voru í það minnsta tvö ár liðin fá því að Hannibal var veitt lausn uns heimildin var veitt, ekki eitt og hálft. Hann settist svo aftur í ríkisstjórn á Bastillu daginn 1971 eða um áratug eftir að heimildin var veitt.
---
Hvað með Finnboga Rút, mátti hlera hans síma?
---
Miðað við sagnfræðilegu uppljóstrunina á árinu, hve margir menn hafa enn ekki verið nafngreindir?
---
Fyrirsögnin er gripin úr forustugrein Morgunblaðsins 7. desember 1961
mbl.is Heimild veitt til að hlera síma Hannibals Valdimarssonar árið 1961
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

af draumum og inngripum

Fyrst endurtek ég mitt fyrra blaður hér, prófkjörið var glæsilegt. Flokksbundnum Sjálfstæðismönnum fjölgaði um 800.

Til hamingju Guðmundur Skarphéðinsson með glæsilegt prófkjör

Til hamingju Kristján Þór Júlíusson með að ná markmiði þínu, 1. sætinu.

Til hamingju Arnbjörg, Þorvaldur, Sigríður og Steinþór með bindandi kosningu.

Til hamingju Anna Þóra með stærsta prófkjör ársins í naustrinu.

Ég vonast til að kynnast "nýliðunum" Ólöfu og Steinþóri á vori komanda.

-

Ég velti því fyrir mér í ljósi ummæla keppinautanna á síðasta landsfundi um varaformannsstól
hefði listinn

Arnbjörg

Kristjan

Ólöf

Þorvaldur

Sigríður

Steinþór

ekki verið drauma uppstilling að mati varaformanns Sjálfstæðisflokksins (eða þeirra sem voru í kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins á Akureyri þegar fyrsta fléttulista Sjálfstæðisflokksins var stillt upp árið 2002) með tilliti til kynferðis

eða

Arnbjörg

Kristján

Sigríður

Þorvaldur

Ólöf

Sigurjón

með tilliti til kynferðis og landshluta


---

En óheppilegt inngrip leiddi til draumaniðurstöðu...

Hvaða skilaboð var varaformaðurinn að senda þeim þremenningum:
Kristni Péturssyni, Sigurjóni Benediktssyni og Birni Jónssyni?
---

Ég sá athyglisverða grein eftir Pál Bergþórsson í mogganum um helgina, á þess að ég geti sagt nokkru um endanlega röðun listans ef reglur hlutfallskosninga giltu líka í prófkjörum.


mbl.is Niðurstaða prófkjörsins „er draumauppstilling"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennan magnast!

Prófkjörið gefur góð fyrirheit varðandi kosningarnar í vor; 1168 fleiri kusu í prófkjöri flokksins en í prófkjöri fylkingarinnar í Naustri. Ég veit ekki hvernig kosninga þátttaka var á hverjum stað, ég veit heldur ekki hve mikið var um nýskráningar. En prófkjörið gefur góð fyrirheit. Til hamingju Guðmundur Skarphéðinsson.
mbl.is 3.032 greiddu atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tíðindi í tæknilegum heimi

mbl-25-11-06b
Jens Sigurðsson, hvern mig rekur ekki minni til að ég hafi hitt, benti á skáldið Styrmi Gunnarsson fyrir nokkru. Í dag sá ég þetta ljóð eftir Styrmi á forsíðu Moggans, í samræmi við annað, getur skáldið ekki kallað ljóðið: Tíðindi í tæknilegum heimi ? Það er í það minnsta ljóst Styrmir hefur haft gott af samstarfinu við Matthías á ritstjórnarskrifstofunni. Nema ljóðskáldið hafi alltaf blundað í Styrmi og sé að brjótast út núna, hver veit? Það verður gaman að sjá hvað hann færir okkur í framtíðinni.


mbl.is Google lögsótt fyrir brot á höfundarrétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Von og trú

Ég er spenntur, það er spennandi fyrir mig að sitja hér og bíða þess sem verða vill. Ég vonast til þess að þátttakan í prófkjörinu verði góð. Ég veit fyrir víst að þátttakan verður ekki 100%.


Fari svo, sem margir vona, að Sjálfstæðisflokkurinn standi eftir Alþingiskosningar með þingstyrk sem ekki verði hægt að horfa framhjá, þegar hugað verður að myndun ríkisstjórnar, þá er ljóst að einu gildir hvort Arnbjörg, Kristján eða Þorvaldur hreppi það hnoss sem þau sækjast eftir; það verður útilokað að útiloka oddvita Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæminu frá setu í ríkisstjórn.

Einar Kristinn Guðfinnsson var Þingflokksformaður Sjálfstæðsflokksins uns hann varð 2005 Sjávarútvegsráðherra, líkt og Ólafur Garðar Einarsson sem varð menntamálaráðherra eftir að hafa stýrt þingflokki Sjálfstæðisflokksins frá 1979 fram til 1991 þá tók Geir Haarde við og stýrði þingflokknum uns hann varð fjármálaráðherra 1998 þegar Sigríður Anna Þórðardóttir tók við formennsku í þingflokknum sem hún lét af, varð varaformaður þingflokks, þegar það var ákveðið að hún yrði Umhverfisráðherra rúmu einu og hálfu ári síðar. Ef ég man rétt þá var Gunnar Thoroddsen þingflokksformaður á eftir Jóhanni Hafstein.


Ég vona að niðurstaðan verði aðsóps mikill listi hvar sem borið verður niður í kjördæminu. Ég er þó ekki alveg viss um að niðurstaðan verði nákvæmlega eins og ég hefði kosið, er Hrafnkell segir réttilega að við höfum efni í góðan lista.


mbl.is Prófkjör í Norðausturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt er í heiminum hverfult

Í ljósi fréttaflutnings af orðum núverandi samgönguráðherra, þá man ég enn eftir forvera hans í starfi sem sat jú í heil 8 ár í jarðgangnaráðuneytinu. Þegar mannaskiptin urðu sagði annar ráðherra sem enn situr í ríkisstjórn og hafði setið í ríkisstjórn, að tími hefði verið kominn til að skipta, þó ég hafi ekki verið sáttur við skiptin, man ég þessi orð enn í dag.
---

Mér fannst Guðmundur G. Halldórsson komast vel að orði, mér fannst boðskapur hans ríma vel við það sem ég skrifaði í sumar sem leið, um líktleiti og fundið var að því að ég hefði verið lengi netsambandslaus fjærri Fróni. En ég gerði sem ég gat til að hvetja Halldór Blöndal áfram til góðra verka fyrir landsmenn alla. Hann varð sem kunnugt er ekki við bón minni en Guðmundur G. Halldórsson - ekki sonur Blöndals- kvað:
Frá æskudögum verkaval,
vísnasmiður góður,
með skálm í hendi skar hann hval,
skrafaði sjaldan hljóður. 
- 
Hann hefur lítið átt við öl,
orðum mörgum hlaðinn,
það væri mikið byggðaböl
ef bjáni kæmi í staðinn.
-

Í umferðinni verndarvætt
veit af góðu kyni,
góðan mann af Gottskálksætt
gott er að eiga að vini.
---
Kannski eru átök, stór eða smá, ekki alltaf málið, kannski skiptir meiru að vinna vel, jafnt og þétt?

mbl.is Samgönguráðherra segir þörf á stórátaki í vegamálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

kvölin og völin

Arnbjörg Blöndal? - Kristján Blöndal? - Þorvaldur Blöndal? - Arnbjörg Jónsson? - Kristján Jónsson? - Þorvaldur Jónsson? - Arnbjörg Sólnes? - Kristján Sólnes? - Þorvaldur Sólnes? - Arnbjörg frá Mel? - Kristján frá Mel? - Þorvaldur frá Mel? - Arnbjörg Rafnar? - Kristján Rafnar? - Þorvaldur Rafnar? - Arnbjörg Hlíðar? - Kristján Hlíðar? - Þorvaldur Hlíðar - Arnbjörg Ísberg? - Kristján Ísberg? - Þorvaldur Ísberg? - Arnbjörg frá Fagraskógi? - Kristján frá Fagraskógi? - Þorvaldur frá Fagraskógi? - Arnbjörg Þorsteinsson? - Kristján Þorsteinsson? - Þorvaldur Þorsteinsson?  - Arnbjörg á Seljavöllum? - Kristján á Seljavöllum? - Þorvaldur á Seljavöllum? - Arnbjörg Hermannsson? - Kristján Hermannsson? - Þorvaldur Hermannsson? - Arnbjörg Pétursson?- Kristján Pétursson? - Þorvaldur Pétursson? - Arnbjörg Ingimundarson? - Kristján Ingimundarson? - Þorvaldur Ingimundarson? - Arnbjörg frá Múla? - Kristján frá Múla? - Þorvaldur frá Múla? - Arnbjörg Jóhannesson?  -  Kristján Jóhannesson? - Þorvaldur Jóhannesson? - Arnbjörg Olrich? - Kristján Olrich? - Þorvaldur Olrich? - Arnbjörg Pétursson? - Kristján Pétursson? - Þorvaldur Pétursson? - Arnbjörg Dagbjartsson? - Kristján Dagbjartsson? - Þorvaldur Dagbjartsson? - Arnbjörg Kvaran? - Kristján Kvaran? - Þorvaldur Kvaran? - Arnbjörg Eggerz? - Kristján Eggerz? - Þorvaldur Eggerz? - Arnbjörg Benediktsson? - Kristján Benediktsson? - Þorvaldur Benediktsson? - Arnbjörg á Hvanná? - Kristján á Hvanná? - Þorvaldur á Hvanná? - Arnbjörg Hallsson? - Kristján Hallsson? - Þorvaldur Hallsson? - Arnbjörg Hafstein? - Kristján Hafstein? - Þorvaldur Hafstein? Nei reyndar ekki - valið stendur milli nýrra nafna:

Arnbjargar Sveinsdóttur, Kristjáns Þórs Júlíussonar
og Þorvaldar Ingvarssonar

Spurning sem kannski má spyrja sig hvert þeirra er líklegast til að eiga auðveldast með að skapa sér sérstöðu gagnvart fyrri þingskörungum okkar norðaustursvæðinu.

Ég veit ekki hvort einhver tekur mark á mínu mati á mönnum, hvort annað gildir þegar landsmál eru annarsvegar en gilti þegar
Guðmundur Egill hlaut ekki það brautargengi sem mér þótti hann eiga skilið. Hvorttveggja Valhöll sem og Kaupangur hafa kveðið upp úr um það að ég fæ ekki að taka þátt í þessu prófkjöri. Ég væri ekki búinn að gera upp við mig nú á þessari stundu hverja ég myndi setja í 3., 4., 5., og 6. sætið, Ég væri sennilega ákveðinn í því hvaða nöfn ég myndi merkja við, en hvaða númer þau fengu, það þyrfti aðeins meiri yfirlegu, ef ég á Fróni fengi í prófkjöri að kjósa.
---
Hinsvegar heyrði ég þegar ég kom úr sturtu í morgun, fyrst í fréttum svo í spjalli á J-Bylgjunni af þessum
samanburði, þótti þeim sem talaði Nauðsynlegt að taka það fram að VIÐ stæðum vinum okkar Finnum að baki, sem og kunningjum okkar Norðmönnum, sem trjóna á toppnum sama hvaðan á toppinn er litið.


mbl.is Jafnrétti kynjanna mest á Norðurlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá samanburður

Fylking sú, sem stefnir að því að skáka Flokknum, stilti upp lista nú um helgina í höfuðborginni. Margir hafa haldið því til haga að prófkjör Flokksins var lokað en fylkingin opnaði sitt prófkjör fyrir öllum sem kjósa vildu. Þá hefur þess og verið gætt að gleyma ekki að tilgreina þátttöku tölur í hvoru prófkjöri um sig. Framboðslista Flokksins sköpuðu 10.846 sjálfstæðismenn með sínum 10.282 gildu atkvæðum þá vita menn að það voru 50,88% af 21.317 sjálfstæðismönnum sem gátu kosið. Fylkinguna formuðu 4.842 með 4.759 gildum atkvæðum. Fylkingin nefnir ekki hvort kjörið hafi verið bindandi - ólíkt því sem flokkurinn tekur skýrt fram. Menn hafa jafnframt munað eftir nýafstöðnum prófkjörum sömu fylkingar í víðlendari en fámennari kjördæmum en höfuðborginni, hvar þátttaka reyndist meiri. Ekki hefur gleymst að formaður fylkingarinnar fékk minna hlutfall af heildarfjölda atkvæða í sínu prófkjöri en formaður flokksins.

Ef litið er á niðuststöður, tölur eins og þær birtast almenningi á vefnum, má sjá að fleiri kusu Guðlaug Þór Þórarson í annað sæti, hjá Sjálfstæðisflokknum, en Samfylkinguna í heild sinni. Þá má og sjá að fleiri kusu Björn Bjarnason í annað sæti, hjá Sjálfstæðisflokknum, en Ingibjörgu Sólrúnu, forkonu fylkingarinnar, í fyrsta sæti hjá Samfylkingunni.

Þá má og sjá að Frú Grazyna M. Okuniewska fékk fleiri atkvæði, meiri stuðning, til setu á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík (3.514) en nokkur hinna þaulsetnu atvinnupólitíkusa Samfylkingarinnar í Reykjavík þurfti til að tryggja sér það sæti sem að endingu varð - Ef mark má taka af upplýsingum á vefsíðu samfylkingarinnar. 

Þá má nefna það að formaður Sjálfstæðisflokksins fékk fleiri atkvæði í sitt fyrsta sæti en formaður fylkingarinnar, varaformaður fylkingarinnar og þingflokksformaður fylkingarinnar fengu samanlagt í prófkjöri fyrlkingarinnar nú um helgina.

Sigurður Kári Kristjánsson hlaut 547 atkvæðum fleira í 4. sæti sjálfstæðisflokksins eitt og sér en varaformaður fylkingarinnar fékk samanlagt í fyrstu fjögur sæti framboðslista fylkingarinnar.


mbl.is Niðurstaðan ljós í prófkjöri Samfylkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband