17.1.2007 | 15:05
Nýja árið opnað
Til hamingju með nýja árið.
Dagurinn í dag er vel fallinn til þess að opna þetta ágæta nýja ár. Næyja árið verður nýtt til búferlaflutninga, hvenær svo sem óskabarn þjóðarinnar, ellegar samkeppnisaðilar þess kjósa að greina frá grundvallar atriðum varðandi búslóðarflutninga. Skýrslu skömmin er farin að taka á sig mynd enda var kominn tími til, vonandi get ég losað sitthvað af hinum ýmsustu hökum sem hefur hangið þar í eina tvo mánuði.
Nepal virðist vera á réttri leið þó sjálfskipuðum maóistum með blóðugar hendur sé hleypt inn á nýja þingið. Það er kominn tími á aðra fjalla ferð. Vonandi munu hryðjuverkamennirnir í Himalayafjöllunum aldrei vígbúast á ný.
25.12.2006 | 01:50
Gleðileg jól
Þar sem ég er kominn úr jólafríii vil ég óska ykkur allra gleði hamingju og góðrar heilsu um jólin, þó þetta sé ekki í stíl við þankagang listaskáldsins í desember 1844.
Leiðin
Venus villtist yfir háhýsi
veglaus í mengun nútímans,
kíma kunna himintungl
að kvennaleit ungmenna.
Þorsta þekkja
þessir skuggabúar.
Þráhyggðri tilveru þykir
þess almáttuga blessun góð,
sú sjálfsfórn
sem, einatt allslaus,
sýnir sérhverjum
í annað skjól.
Við drukknun, dreng þykir
dælt ástar að minnast,
hlýju hrausts vöðva
heilagrar elsku,
hafi um sjálfan hugsað
hans kæra snót.
Brautarteinum beinum hjá
brösuðu í kyrrðinni.
Skrifað gat þá skipulag
í skaut og gefið,
er fjölmenni var fjarri,
Feikn og býsn allskonar.
Fjallagrösin fögur
fyrir vitum ilma,
líka kunna litlum
laglegir hlutir að spilla.
Eitt sinn gefnir gripir,
ganga stundum aftur.
Gantast má í grósku tíð
gangstéttar hellu á.
Þar þykir gott að vera
þessari elsku með.
Aðrir staðir ekki
unaðinn fanga.
Hreinhjartaður hópur
hinna snauðu,
trega tárum væta
trygglinda hvarma,
er elskendur morgunvatn
einungis að skilnaði drekka.
Leiddi þó gegnum þvögu,
þá sem elskar og kætir,
sterk hönd styrktist
sem stólað var á.
Vildi vera saman,
vissulega þráði.
Auka mátti á leti,
áningarstaðnum hjá,
af fremsta fræddu megni.
fyrir einn,
yndis gleði, unað veitir.
Ekkert við það jafna má
Ungmenni í einsemd
ætíð, í háhýsis skugga, veit
þó þrá eftir konu
þjaki með söknuði,
Venus víst brosir
villtur í menguninni.
Máttugur meistari
misskilningi beitir.
Vopn ógna víst, og skelfa.
En vinarlegar, fyrir sálir,
einatt að endingu
ekkert fer illa.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2006 | 12:32
Tilraun til jólakveðju
Það er rétt að taka það fram að gagnvarpinu, gagnvarpsins blaðri á veraldarvef sem og alnetinu öllu, geta Íslendingar, nú og síðar, þakkað. Hinum örtfjölgandi Íslendingum er óþarft að hugsa til þess með hryllingi að ég verði nefndur með einhverju þjóðskáldanna. Reyndar voru aldrei verulegar líkur á að ég yrði skáld yfirhöfuð.
Ég óska hinum nýju sem og hinum gömlu íbúum Íslands ekki frjálslyndra jóla heldur gleðilegra.
Það verða örugglega fleiri í fjöri á Fróni nú en síðast.
Ég læt þetta duga sem jólakveðju til ykkar sem ekki fá aðra slíka kveðju frá mér að þessu sinni.
Gleðileg jól, jóla fríið er hafið.
-
Jólahreingerningin á jóladagsmorgni fólst í að slíta kveðjuna í tvennt, teygja hana á langinn, svona til að betrum bæta fyrir strákapörin svo frú Grýla gleypi mig ekki.
![]() |
Hvergi í Evrópu jafn mikil fólksfjölgun og á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.12.2006 kl. 02:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.12.2006 | 08:49
Bíðið nú hæg
Er það tilfellið? Geta menn almennt ráðið sig sjálfir til starfa? Eða Eru það bara Flugumferðarstjórar sem eru slíkir örlagavaldar yfir eigin starfsframa, að þeir geti ráðið sig í til starfa. Eða gildir þetta almennt um opinber hlutafélög? Ætli Egill Helgason myndi vilja ráða sig til starfa hjá Ríkisútvarpinu ohf.?
Minn skilningur á þessu máli er samt sá að enginn Flugumferðarstjóri hafi verið ráðinn til viðbótar þeim sem fram að þessu höfðu verið ráðnir, þar sem enginn sótti um innan þess sjötta frests sem gefinn var og rennur út í dag. Mér er til efs að þó einhver Flugumferðarstjóri sæki um í dag að hann verði ráðinn samdægurs, þó hann yrði án efa ráðinn þegar fram í sækir.
![]() |
Enginn enn ráðið sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2006 | 01:28
Ég verð að segja það
Er óróleikinn í Frjálslyndaflokknum til komin vegna tungumálaörðugleika. Er reykvískan svona frábrugðin vestfirskunni?
![]() |
Sátt um að Margrét fari í leyfi fram að landsþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.12.2006 | 09:43
Hvað munum við muna?
Mannkynssagan lengist með hverjum deginum. Sumir fást við það að færa það til bókar sem á daga okkar drífur. Bækur, geta í framtíðinni varpað einhverju ljósi á það hvernig við tókumst á við lífið í fyrndinni. Hvað ber hæst þegar fram í sækir er vandi um að spá. Til að mynda hefur margt gerst í þessari viku sem og svo mörgum öðrum.
Ég get nefnt að
- laugardaginn 25. nóv. var fjölmennt prófkjör í Norðaustri
- sunnudaginn 26. nóv. fékk Berlusconi aðsvif við ræðuhöld
- mánudaginn 27. nóv. staðfesti Hæstiréttur LL Kongó forseta kjör Kabila
- þriðjudaginn 28. nóv. afléttu valdaránsmenn herlögum í 41 héruði af 76 héruðum Taílands
- miðvikudaginn 29. nóv. gaf listamaðurinn Bono stjórnmálamanninum Abe sólgleraugu
- fimmtudaginn 30. nóv. skemmtu hljómsveitin U2 stjórn Félags Íslendinga í Japan og gestum
- föstudaginn 1. des. er nýr forseti svarinn í embætti í Mexíkó
Í dag er líka dagur rauðanefsins og þá er gott að brosa eins og Baggalútur syngur um. Eins er Alnæmisdagurinn í dag. og Til hamingju með Fullveldið.
![]() |
Forseti Mexíkó svarinn í embætti á miðnætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.11.2006 | 23:49
Dugar þessi lækkun
Næsta skref verður væntanlega að lækka annan virðisauka skatt en þann sem verður lækkaður í mars.
Hvað sem metingi milli okkar og Norðmanna líður þá verður sennilega lífvænlegra að búa á Íslandi í mars en febrúar. Ég treysti íslenskum kaupmönnum.
![]() |
Frumvarp um lækkun virðisaukaskatts á matvörum lagt fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.11.2006 | 16:40
Mun
![]() |
Forseti Írans hvetur Bandaríkjamenn til að yfirgefa Írak |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2006 | 15:38
Frábært framtak
---
Annað og fréttinni reyndar nookuð fjarskylt, á hve mörgum opinberum tungumálum aðildarríkja Evrópusambandsins hafa einhverjar Íslendingasögur verið þýddar? Árið 2001 fann ég enga Íslendingasögu á spænsku og ekki heldur árið 2003, hefur ástandið breyst?
![]() |
Skólaorðabók gefin út til að auðvelda Pólverjum íslenskunám |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.11.2006 | 13:49
Hvaða hvaða
Eða voru fyrstu ellefu mánuðirnir kannski meira en nóg fyrir Þorstein, Hugleik, Margréti, Ara Úlf og Reyni?
Ég vona að ég geti séð skaupið þetta árið. Það var fár þetta ár eins og önnur ár. Spaugstofan getur markað sér sérstöðu með einokun á grínmarkaði desembermánaðar, það hlýtur að gera gæfumuninn fyrir milliuppgjör Grín Group ohf. eða hvað?
![]() |
Tökum á Áramótaskaupinu lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)