19.10.2006 | 15:30
Já
![]() |
SVÞ vill stórátak í vegamálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2006 | 07:53
hvað með mjúk mótmæli?
En hve mikið af óánægjunni, erlendu, er komið til fyrir tilstilli heimavinnu innlendra óánægðra einstaklinga?
Af hverju formæla menn hvalveiðum sem mest þeir meiga en bæta svo við að svona nokkuð breyti engu eða hafi engin áhrif eða beri sig ekki og verði því sjálf hætt? Má segja slíkan málatilbúnað fálmkenndann?
![]() |
Hörð viðbrögð við veiðunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.10.2006 | 14:01
Hvalreki
Andstæðingar veiðanna halda því fram að það sé ekki markaður fyrir hvalkjöt. Ef það er rétt, hvernig geta þeir þá haft áhyggjur af ofveiði hvala?" spyr Lapointe. Staðreyndin sé sú að það sé ákvörðun veiðimannanna sjálfra hvort þeir leggi fé sitt í veiðarnar, ekki dýraverndarsamtaka. Íslensk stjórnvöld eigi svo að fylgjast með veiðunum og gæta þess að þær séu innan löglegra marka.
Stjórnvöld í einu landi hafa lítið með það að gera að ákveða hvort markaður fyrir ákveðna vöru sé, eða sé ekki fyrir hendi í öðrum löndum. Eigum við að ákveða hvort markaður með hundakjöt sé til staðar á Kóreuskaganum eða við strendur Kínahafs?
Þeir borða hval sem vilja ekki kveljast.
![]() |
Náttúruverndarsamtökin IWMC styðja hvalveiðar Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2006 | 09:54
sænsk er Grýla-kerling ekki!
Segjum sem svo að Þorgerður Katrín hefði ekki borgað afnotagjöldin af RÚV og Jón Sigurðsson hefði greitt heldur lítið, og svart, til húshjálpar sinnar, og þar að auki vaæri vitað að tveir ráðherrar hefðu reykt hass, jafnvel "andað hassreyk að sér". Og að allt þetta kæmist í hámæli innan tveggja vikna frá valdatöku ríkisstjórnarinnar, þ.e.a.s. á seinnihluta júnímánaðar 2006. Þá hefði margur sagt mikið meira.
Ég held að Geir og hans galvaska lið hafi staðið sig vel í sumar. Ég veit að hann getur gert meira því þau hafa og staðið sig vel nú á haustmánuðum. Árni ætti að framkalla prósentið sem við sáum fram á að glata í sumar og þá verður allt gott, eða er ég orðinn yfirblaðrari ef ég skrifa svona.
Ég vona Svíja vegna að gott fólk veljist í staðinn fyrir þau sem náð'u ekki að ljúka starfsþjálfuninni.
![]() |
Annar ráðherra segir af sér í Svíþjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2006 | 05:26
Ef
En ef Íslendingar hefðu nú sigrað stórþjóðina við Eystrasalt? Ætli Lettar hefðu farið yfir um í hneikslan og refsað ríkisstjórnarflokkunum fyrir lélegan aðbúnað og slæglega þjálfun knattspyrnulandsliðsins. Ég man þegar kennari í Egilsstaðaskóla sagði okkur nemendunum að þó að seinni heimstyrjöldinni hefði lokið einhverjum árum áður, þá hefði ekki verið heimsfriður í staðinn, meira að segja hefði brotist út ófriður milli tveggja nágrannaríkja í rómönsku ameríku að loknum landsleik í knattspyrnu. Þá hefðu Lettar nú talist friðsamir ef þeir hefðu bara steypt stjórninni.
![]() |
Útlit fyrir sigur stjórnarflokkanna í Lettlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2006 | 13:55
Gott mál
ég vildi ég gæti fylgst með Laufeyju og að sjálfsögðu áhugaverðasta erindinu sem er þar á undan.
![]() |
Málþing um fjölmenningarlegt Austurland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.9.2006 | 09:49
Fínar fréttir
Þykja mér þetta tíðindi hvorttveggja merk og góð. Því dettur mér í hug að bragbæta fronan slagara úr fjörugum félagsskap.
Það er og gott til þess að vita að, þó H. Blöndal hugi að hæglátaralíferni en gengur og gerist í hringiðu stjórnmálanna, þá hugi menn enn að framförum í samgöngumálum á Fróni.
Greiðrar leiðar góða lið
gæti nálgast merk markmið.
Halldór Blöndal hann við lofum
hér á Verði ekki sofum.
Gegnum göngin ökum við
að góðum norðlenskum sið
![]() |
Vaðlaheiðagöng ekki háð umhverfismati |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.9.2006 | 04:27
"fremur fátt að sækja"
Þetta eru afar afskekkt svæði og fáfarin, nema helst af smalamönnum á haustin. Þangað er líka fremur fátt að sækja fyrir ferðamenn, nema þá til að skoða hreindýr og minjar um framrás Brúarjökuls. Hvort tveggja er þó aðgengilegt með auðveldari hætti annars staðar... |
- Árbók Ferðafélags Íslands 1987, um Kringilsárrana. |
Er ráðlegt að rifta gerðum samningum - fresta afhendingu rafmagns. Má þá e.t.v. minna á að nokkur hluti umrædds svæðis hefur verið snortinn með manna höndum - því er erfiðara en áður að tala um ósnortin víðerni. Er gáfulegt að ætla ríkissjóði að greiða Landsvirkjun hf. skaðabætur fyrir tekjumissi af virkjun sem ekkert virkjar? Virkjun sem stæði ónotuð, virkjun sem kostar talsverða fjármuni að reisa.
Viðbót:
Stefán Jón skrifar um þöggun í Morgunblaðið í dag. Í grein sinni fer Stefán með rangt mál þar sem hann segir Ómar hafa "neyðst til að segja sig frá störfum". Ómar er samkvæmt hans eigin orðum ekki að hætta fréttamennsku. Hann sagði að fullt traust ríkti milli hans - Ómars- og yfirmanna RÚV. Ómar er fréttamaður RÚV í dag líkt og í fyrradag.
![]() |
Ómar Ragnarsson kallar eftir þjóðarsátt um Kárahnjúkavirkjun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2006 | 14:14
Þó fyrr hefði verið
Þingkosningar voru fyrirhugaðar 15. október.
Eða eitthvað á þá leið.
-
umhverfris og auðlinda ráðherra Taílands hefur verið gert að gefa sig fram við valdaræningjana sem hann og gerði - hann er í varðhaldi.
![]() |
Bandaríkjastjórn fordæmir valdaránið í Taílandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2006 | 14:00
Skref í lýðræðisátt?
Innan tveggja vikna er ráðgert að finna nýja forsætisráðherra. Svo á að skrifa nýja stjórnarskrá. Þá er talað um þingkosningar innan árs/ eftir eitt ár, uppundir ellegar meira en - veltur á þýðningum - ellefu mánaða seinkun á lýðræðislegum kosningum í Taílandi. Í þokka bót hefur starfsemi stjórnmálaflokka verið bönnuð. - Jákvætt? Ég held ekki. Thaksin er hvort sem hann er í embætti eða án þess; í fríi eða fullu starfi ekki á flæðiskeri staddur, hann þarf ekki á embættinu að halda. hann hefur komi sínum málum svo vel fyrir að hann þarf þess ekki með - fyrir það var hann sennilega gagnrýndur hvað mest.
Valdarán eru ógn við lýðræðið.
![]() |
Pólitísk starfsemi bönnuð á Taílandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.2.2007 kl. 03:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)