spámenska mín

Mikið er nú gott að ég hafi ekki lagt fyrir mig spákaupmensku. Nú hljóta allir að sjá að ég er ekki spámannlega vaxinn. Ekki sá ég þetta fyrir. Ekki bjóst ég við þessu. Garpurinn getur enn komið mér á óvart.

Það var hetja sem vildi, og fékk framgengt áformum um uppbyggingu heilsársvegar milli Norðurlands og Austurlands í andstöðu þingmanna annarra flokka í hvoru kjördæmi fyrir sig. Þá var ég ákveðinn í að fara á Landsfund og styðja Halldór Blöndal til forustu Sjálfstæðisflokksins. Þá sá ég að framsýnan mann, sem reyndi ekki að afla vinsældir ef hagsmunir stæðu gegn því. Þingmenn Naorðurlands kjördæmis eystra lögðu áherslu á strandleið, þ.e. uppbyggingu vegarins með fram ströndinni, þar á meðal var Steingrímur J.. Halldór Ásgrímsson og Jón Kristjánsson voru á samahátt hrifnir af strandleið. Norðlendingar vildu fá atkvæði Norður Þingeyinga en þingmenn Austurlands að Agli Jónssyni slepptum horfðu á atkvæði Vopnfirðinga og Bakkfirðinga. Nú í dag, vildu allir Lilju kveðið hafa, reyndar talaði framsóknarþingmaður nokkur á þá leið að Framsóknarmenn ættu heiðurinn og það strax 1995. Hann hefur verið óþreytandi í vinnu sinni fyrir hagsmunamál Norðurlands og Austurlands. Ég man eftir gjaldskrárbreytingum Pósts&Síma og síðar Landsímans sem jöfnuðu símakjör landsmanna. Ég vona að Halldór sé sáttur við sína ákvörðun.
Vonandi bera Íslendingar gæfu til þess að í stað Halldórs veljist frambjóðandi sem getur haldið áfram þeim verkum sem Halldór hefur unnið að, gera Ísland enn betra.
Ég bjóst við því að hann vildi heimta aftur forustu sæti þingmanna í sínu kjördæmi. Ég bjóst fyllilega við því að Blöndal byði sig fram á nýjan leik.
Hér eftir má hafa gaman af hvámennsku minni en spámennska mín er einskis nýt. Eða kannski var það von mín ...


mbl.is Halldór Blöndal sækist ekki eftir endurkjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

fótum troðslu lýðræðiðs "fagnað"

Vissulega er Thakisn enginn engill. Ekki var allt með kyrrum kjörum í Taílandi síðastliðna árið.
En valdarán er það og valdarán verður það kallað. Það er ekkert grín að fresta lýðræðislegum kosningum í um 11 mánuði. Óskandi er að Sonthi og samsærismennirnir nýti sér ekki allan þann umþóttunar tíms sem þeir gefa sér sjálfir.

Í fréttinni er sagt frá könnun sem birt er undir ákvæðum ritskoðunar -hve áreiðanleg er slík könnun?


mbl.is Konungur studdi valdaránið í Taílandi að sögn hershöfðingja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýliðinn

Já menn tala um nýliða þar sem hann hefur bara setið á þingi í 13 ár. Hinsvegar er maðurinn hvergi nærri ættlaus. Faðir hans Shintaro gengdi embættum, landbúnaðarráðherra, viðskiptaráðherra og loks utanríkisráðherra Japan. Föður afi hans Kan sat líka á þingi. Þessir þrír ættliðir Abe fjölskyldunnar hafa verið kjörnir í Yamaguchi, vestasta hluta Honsu.

Móður afi hans Nobusuke Kishi var viðskiptaráðherra í seinni heimstyrjöldinni 1941-1945, handekinn sem stríðsglæpamaður 1948, og loks forsætisráðherra Japans 1957-1960. Nobuske var hálfbróðir Eisaku Sato sem var forsætisráðherra Japans 1964-1972.  Sato hlaut friðarverðlaun Nóbels 1974. 

Shinzo á afmæli á morgun og verður að öllum líkindum kjörinn forsætisráðherra á þriðjudaginn. Hann verður fyrsti forsætisráðherra Japans fæddur eftir stríð og sennilegast sá yngsti. Hann var farinn að ræða við menn um ráðherrastöður í síðustu viku. Í fréttinni er ekki minnst á Norður Kóreu, en samskipti Japana og Norður Kóreu hafa ekki verið upp á marga fiska.


mbl.is Shinzo Abe næsti forsætisráðherra Japans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var og

Svona eiga sýslumenn að vera. Svona eiga fréttir að vera yfirgripsmiklar og fullar af fróðleik.

Án þess að ég geri tilkall til sérfræðingstitils þá held sá ég einungis eitt atriði sem mig grunar að sé ásláttarvilla. Það verður að teljast gott í svona langri frétt á miðli sem þessum hvar orðalag, málfar og stafsetning stingur of oft í stúf.

Hvað er það sem stingur í stúf í þessari annars afbragðs góðu frétt? Jú sú stað hæfing að í september 1999 hafi Gerrard verið vísað af leikvelli í fyrsta leik sínum gegn Everton, en það hafi ekki verið fyrsta brottvísun hans í granna slag því í mars síðastliðnum [2006] hafi honum verið vísað af leikvelli eftir 18 mín. Væri skárra segja ekki eina brottvísun  hans í grannaslagnum

Eins eru staðreyndirnar um 14 leiki án taps eitthvað sem ég átta mig ekki alveg á.

Einkunn 8,9

Fleiri svona fréttir takk fyrir!
mbl.is Borgarslagur af bestu gerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfuðlaus her í hálfan annan mánuð

Það er aldeilis væntum þykja um flokkinn, að láta reka á reiðanum í hálfan annan mánuð, og gefa svo nývöldum erfingja valdataumana yfir landi og liðs"heild" 15./16. júní.
Skv. þessari frétt verður Verkamannaflokkurinn höfuðlaus her frá 4. maí uns nýr maður hefur verið kjörinn, samt ætlar sami Blair að leiða landsmenn þó hann láti af leiðbeiningu fyrir flokksmenn. Eða er vitað hver muni stýra flokknum í milli tíðinni?
mbl.is Blair lætur af leiðtogaembætti í maíbyrjun; nýr leiðtogi kjörinn í júní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er aldeilis, innan við helmingur umsækjenda hreppti það hnoss sem hópurinn girntist. Að vísu var ekki öllum lóðum úthlutað, því eftir sumum lóðum, einkum lágu númerunum í Bláagerði, sóttust færri en eftir hinum lóðunum, í Hömrum, Og höfðu þeir sem þar sóttu um fengið úthlutað lóðum áður en að hinum minna eftirsóttu lóðum kom. Kannski verður samið við þá sem ekki fengu um að þeir byggi á þeim lóðum sem ekki var úthlutað. Vissulega verður munur á Bláagerði 69 og Bláagerði 6. 

En hver vill ekki í Bláagerði búa.

Hinsvegar hefði úthlutunin farið á eilítið annan veg hvað varðar lóðirnar hátt upp á Hömrum hefði verið áhugaverðara að fara þangað í heimsókn, hefðu þeir meðlimir gáfumanna félagsins sem sóttu um fengið lóðir, að hálft gáfumannafélagið hefði búið hlið við hlið. Það hefði orðið saga til næsta bæjar. En til hamingju Jón Arnar.
mbl.is Mikil ásókn í byggingalóðir á Egilsstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Traust

Gott að bæjarstjórinn sé tryggur og trúr sínu samfélagi og sínu sveitarfélagi. Einbeiti sér að þeim störfum sem bæjarstjórinn er ráðinn til að leysa af hendi.

Ég man eftir að hafa lesið vangaveltur á þessum blaðurslóðum Morgunblaðsins þar sem vöngum var velt yfir hugsanlega skammri dvöl í bæjarstjórastól Hveragerðis, vitan læega var þeim vöngum velt í skugga óvissu um framhaldið. Óskandi er að Hveragerði verði blárri sem aldrei fyrr.

Aldís er traust, tekur af allan vafa um óþarfa hringlandahátt fyrir sveitarfélagið sem fylgt gæti þingmensku hennar, þar eð ráða þyrfti nýjan bæjarstjóra. Vonandi er að hún vaxi í starfi og verði þekktar fyrir vikið á öðrum slóðum en í nágrenni við apana í Eden.


mbl.is Aldís Hafsteinsdóttir fer ekki í framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3-9-11

Það þarf þrjósku til að halda svonalagað út. Hinsvegar er eitthvað á reiki hve lengi þá rak um Kyrrahafið. Kanski söknuðu ættingjarnir þeirra ekki neitt og segja því að þeir hafi bara verið 3 mánuði í burtu.
mbl.is Lifðu á regnvatni og hráum mávum og fiski í níu mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í fyrsta skipti

Það væri ekki sannleikanum samkvæmt að halda því fram að umræddur Junichiro leggði stund á hægversk umræðustjórnmál og að hann leggði sig í farmkróka við að storka ekki þeim sem eru á öndverðum meiði og hann.
Hér er önnur frétt með myndum úr hofinu. Í fyrra lýsti Koizumi sig andvígan þeirri skoðun að þáttakan í seinni heimstyrjöldinni hafi verið að mati Yaskuni manna til þess að tryggja sjálfstæði Japönsku þjóðarinnar, Koizumi sagðist halda "að Japan hefði átt að koma sér undan þáttöku í því stríði".  Í þessu sambandi hefur verið minnst a að helgidómurinn geri lítið úr slæmu framferði Japana í seinni heimstyrjöldinni og að Japanair hafi ekki beðist afsökunar. Í fyrra sá ég þessa frétt þar sem beðist var afsökunar á stríðsglæpum. Svo segja nýlegar heimildir að sjálfur Showa keisari hafi ekki verið ánægður með nálægðina við stríðsglæpamennina.

Vonandi verða betri fréttir í dag en í gær og fyrradag, frá Japan.


mbl.is Koizumi segir gagnrýni á helgistaðaheimsókn hans barnalega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir

Hver sem er, hvar sem er, hvernig svo sem hver og einn lítur á sjálfan sig, þá hljóta allir, allir, allir friðelskandi menn óska þess að friðurinn sé kominn til að vera, verði varanlegur. Það er óskandi að menn kveðji vopnin í raun og sann.

Nú er hafin ný keppni, keppni í friði, sá vinnur sem elskar friðinn mest og best. Hver er líklegastur til sigurs?

Ég vona að færslan birtist áður en friðurinn er úti.
mbl.is Vopnahlé í Líbanon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband