Samningstæknin

Þau sátu á löngum fundi í gær, og ræddu málin sem er vel. Gott að okkar menn ráku gestina og viðsemjendur ekki á dyr. Enn betra að okkar menn lýstu ekki einhliða yfir fundar slitum. Guð láti á gott vita. Hins vegar er spurning hver sé stífastur. Hver sé stirðastur. Frekur vill alltaf meira.

Verður staða íslensku samninganefndarinnar betri í ágúst þegar kaninn hefur fjarlægt enn meira af eigum sínum af Miðnesheiðinni.

Við verðum samt að hafa í heiðri lögmál lífsins:

Við Íslendingar þurfum einnig að láta okkur skiljast, að við megum ekki fremur en aðrar þjóðir ætla, að við getum til lengdar vænst mikils góðs af nokkurri þjóð, umfram það, sem er í réttu hlutfalli við þá þýðingu, sem við höfum fyrir hagsmuni hennar sjálfrar. 

Við meigum ekki brjóta lögmál lífsins þó Ólafs Thors njóti ekki enn við


mbl.is Varnarviðræðum ekki haldið áfram á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í þetta skiptið

Ég virðist hafa haft rangt fyrir mér í fyrirsögn hér fyrir neðan. AMLO er ekki tilbúinn til að gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Verður nú farin dómstólaleið, en óvíst er hvert sú leið liggur fyrir AMLO, ég er ekki með á hreinu hvernig Hæstiréttur Mexíkó er skipaður.
mbl.is Lopez Obrador hyggst halda baráttunni áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mexíkönsk málalok

Nú er búið að lýsa Caldreon sigurvegara í forsetakosningunum í Mexíkó sem fram fóru síðasta sunnudag, reyndar í tvígang. Á forsíðu Morgunblðasins í dag er dregið talsvert úr kjörsókn; þar segir að innan við 30 milljónir manna hafi kosið, rétt um 29,7 milljónir, sem er 12 milljónum færra en kusu í raun og veru. Gleymir Morgunblaðið PRI og nýju flokkunum tveimur sem og auðum og ógildum atkvæðum. Hinsvegar ber þeim ekki saman Umbótablaðinu Reforma og Heiminum, El Universal annað segir sigurvegrarnn hafa hlotið 35,88%,þ.e. Reforma en hitt 35,89%, þ.e. Universal sem heldur vþí fram á forsíðu að Felipe hafi fengið 15 milljónirn atkvæða og AMLO 14 milljónir og 756 þúsund. Þá er munurinn 243.934 atkvæði skv. Universal en Reforma segir, eins og Morgunblaðið, muninn vera 236 þúsund atkvæði. Í Mexíkó hafa eflaust margir fagnað víða og oft frá því að kjörstöðum lauk.

Unnu 5 af 7 kjörkössum
Þega ég var í Mexíkó 2001 var kosið um borgarstjóra eða forseta borgarstjórnar Mazatlán eins og það heitir á spænsku. Mazatlán er í Sinaloa ríkinu.

Í Sinaloa ríkinu studdu menn nú almennt Felipe, að því að ég fæ séð héðan, en hinsvegar kusu fleiri frambjóðendur PRI til þings í Sinalóa, þó var það ekki raunin í Mazatlán. Í Mazatlán virðast menn hafa tekið PAN aftur í sátt. 

Þegar kosið var í Nóvember 2001 var frambjóðandi PAN forstjóri vatnsveitunnar það í bæ sem hafði gengið brosulega að rækja skyldu sína og fyrirtækisins, en Paso frá PT rak klóka kosningabaráttu, sá til þess að hinir snauðu fengju sitt brauð og mættu á kjörstað, án þess að skeyta um hverfi hinna efnameiri, hvar Cardenas frá PRI og vatnslausu vatnsveitustjórinn tókust frekar á.

ég bjó skammt frá skrifstofu PAN og varð meira var við skrifstofu PAN en skrifstofu PRI, þó áróður PRI hefði staðið lengur yfir og væri látlausari, því gékk ég um hverfið að kvöldi kjördags og settist niður fyrir utan skrifstofu PAN í Mazatlán, hjá mér settist heldriborgari sem bar merki erfiðs lífs í Mexíkó. Ekki bar mikið á veitingum, enda "La ley Seca" virt í hvívetna. Þegar kjörstöðum var lokað leið ekki á löngu uns tilkynningar fóru að berast. Ekki var kosningasjónvarp líkt og við þekkjum, heldur var einn maður sem stóð upp á stól og kallaði upp í hvert sinn er eitthvað fréttist af talningu.
Ég hafði með mér blað og penna og var tilbúinn að skrifa niður tölurnar og vildi sjá hvort Cardenas hefði með glaðlyndum söng stuðningsmanna sinna haft árangur sem erfiði í þetta skiptið. Kynnirinn hafði upp raust sína og sagði: "Í ******hverfi er búið að telja úr 7 kjörkössum, af þessum 7 kössum unnum við 5." Þá fögnuðu sannir PAN-arar en ég gapti. Því næst sagði kynnirinn "Það er búið að telja 3 kassa í ***hverfi, við unnum þá alla". Jú þeir gátu kannski fagnað þessu, en ef þeir unnu alla kassana bara með 1% en töpuðu þessum fyrstu 2 með 30% mun þá gat verið að þeir stæðu illa, því ekki var kynnt um hve mörg atkvæði væru í hverjum kassa. Svona gekk þetta í nokkrar mínútur, eftir hverja tilkynningu var klappað. En svo kom frétt úr kjöri til ríkisþingsins í Sinaloa og hún var ekki alveg jafn góð þá hafði PAN bara unnið 2 af 9 kössum en þá var sagt að í öðru hverfi ynni PAN venjulega fleiri kassa en í þessu þaðan sem slæmu fréttirnar komu. Ég gapti. Þegar kynnirinn þagnaði eftir góða stundafjórðungs þulu gjóaði ég augunum að heldriborgaranum sem hristi höfuðið. Ég gat skilið á honum að hann hafði ekki mikla trú á svona talningar fyrirkomulagi, og líka því að ekki væri minnst á fjölmennu hverfin hvar hinir fátæku voru í meirihluta. En þá var því fagnað að 2 kassar af fimm hefðu unnist einhversstaðar í borginni. Það var fagnað klappað og sungið og dansað.

Ég reyndi að spyrja hvort einhver vissi hve margir hefðu kosið á hverjum stað, fólk yppti öxlum, Enda óþarfi að velta fyrir sér smáatriðum. Ég fór af fagnaðarsamkomunni og leiddi hugann að því að með sínum augum lítur hver á silfrið. Morguninn eftir tók ég upp Noroeste og sá á forsíðunni áður en ég hafði opnað ískápinn að Paso og PT hefðu unnið sinn stærsta sigur í Mazatlán, hreppt borgarstjórastólinn.


mbl.is Calderon með óyfirstíganlegt forskot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ár Þjóðverjans

Í Mexíkó hefur verið haft á orði að síðasta ár hvers háttsetts embættismanns, s.s. borgarstjóra, ríkisstjóra eða forseta, í embætti væri ár Þjóðverjans; Ano de Alemán. Er orðatiltækið dregið af nafni Miguel Alemán Valdés sem varð forseti Mexíkana fyrir 60 árum og sat sem slíkur, í sex ár,  út kjörtímabilið til ársins 1952. Alemán heimilaði konum að kjósa í sveitarstjórnarkosningum, og 1952 varð Baja California að ríki í Sameinuðu mexíkönsku ríkjunum.
Hví ár Alemáns kann einhver að spyrja. - Mexíkanskir gárungar sögðu að meðan PRI ríkti hefðu þeirra menn kannski stjórnað fyrstu fimm árin, en sjötta og síðasta árið snérist allt um hið eina sjálf sem sæti á stólnum, leiða leitað til að koma fé unda og hamst við að náða vini og kunningja fyrir misgjörðir þeirra, sum sé unnið að því hörðum höndum að búa í haginn fyrir sig og sína þegar í skuggann væri komið.
Alemán vann að því að Ólympíuleikarnir yrðu háðir í Mexíkó 1968 þar sem Luis Echeverría Álvarez kom til skjalanna, efndi til þagnarstundar til minningar um fórnarlömbin að morðunum loknum. Reyndar var Echeverría  ráðherra frá 1964 til 1970, er hann varð svo kjörinn forseti. Í forseta tíðinni færði hann út efnahagslögsöguna, mótmælti útrás Bandaríkjamanna, studdi Allende, takmarkaði erlenda fjárfestingu og bauð PLO til Mexíkóborgar.

Vicente Fox Quesada hefur að vísu ekki upprætt alla spillingu. Hinsvegar hlýtur handtökuskipunin að ver rós í hnappa gat hans. Þó Carlos Salinas de Gortari gangi enn frjáls um götur Dyflínar. Ég veit þó ekki hvort handtökuskipunin muni nýtast Felipe de Jesús Calderón Hinojosa nú í baráttu hans fyrir betra lífi Mexíkana gegn AMLO Andrés Manuel López Obrador en hann setur fátæka í forgrunn. Það hefur verið vitað að Fox og Calderón hafa ekki verið mestu mátar, en forvitnilegt verður að sjá hvort Calderón getur vísað til verka flokksbróður síns Fox og sagt að PAN-arar láti verkin tala. Sjáum til. Fox virðist allavega ekki ætla sér að við halda hefðinni um ár Alemán. þar sem að gefin hefur verið út handtökuskipun á fyrrum forseta Mexíkó, slíkt atvikaðist ekk meðan PRI réð ríkjum, Sameinuðum mexíkönskum ríkjum. Guð láti gott á vita.


mbl.is Handtökuskipun gefin út á hendur fyrrum forseta Mexíkó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott mál

Þette eru góðar fréttir. það er gott mál og nauðsynlegt að hafa vakandi auga með vetrarumferðinni. Fólk verður að komast leiðarsinnar svo hægt sé að sinna brýnum erindum. Fólk á ekki að dæmast til kyrrsetu þó ofankoma færist í vöxt. Vissulega er af sem áður var, að því sem næst farbann gengi í gildi við fyrstu snjóa. Samt verðum við að muna að það getur snjóað á Íslandi hvort sem vegirnir eru uppbyggðir eður ei.
mbl.is Aukin vetrarþjónusta hjá Vegagerðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ja hérna hér

Dregur úr væntingum um leið og væntingavísitalan hækkar. Vissulega er 4,46 prósenta hækkun vísitölunnar minni breyting en u.þ.b. 23% lækkun sem átti sér stað fyrir um 3-4 mánuðum síðan. Er þetta framlag Morgunblaðsins til stöðuleika í efnahagslífinu, að tala niður væntingarnar?

Þessi frétt birtist eftir að tilkynnt var að Ríkisstjórnin myndi ekki hraða byggingu hátæknisjúkrahúss.
mbl.is Dregur úr væntingum neytenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðræðan á Íslandi

Nú er spurning hvort þetta sé nóg til þess að menn fari að tala um iðandi straum(s)milða? eða er þetta bara til þess að gefa Dagsbrún straum?
mbl.is Straumur kominn með rúm 10% í Dagsbrún
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvammstangi á kortinu

Setrið er skemmtileg viðbót við þá menningartengdu ferðaþjónustu sem ætíð verður mikilvægari og mikilvægari.

Meðan við erum enn sólgin í upphafningu erlendra manna og kvenna, hlýtur, fyrir framtíð íslenskrar menningar, að vera nauðsynlegt að gera hinum ýmsu kimum íslenskrar menningar skil, og ennþá brýnna að kynna kimana fyrir útlendingum, svo þeir geti dáðst af, og þá gætu Íslendingar tekið við sér og endurnýjað kynnin við gömul gildi.

Kanadískur fræðimaður, hvers nafn ég man ekki nú rétt í þessu, sagði við mig í hneykslunartón, þar sem ég minntist ekki að hafa borðað súrsaða selshreifa, en sagðist þó hafa smakkað selsspik að það besta sem hægt væri að gera fyrir kanadískan sjávarútveg væri að hver Kanadamaður borðaði Selsborgara í það minnsta vikulega, Þannig væri hægt að stemma sitgu við útbreiðslu orma og draga úr ásókn sela í fiskistofna.

Verður fróðlegra að kíkja í heimsókn á Hvammstanga fyrir vikið.
Leirburði dagsins er sleppt að þessu sinni þó selalátur rími við slátur og lýsi við hýsi.

 


mbl.is Samgönguráðherra opnar Selasetur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óábyrgt?

Í síðustu viku komust samtök atvinnurekenda og samtök ákveðinna starfsmanna atvinnurekenda, e.þ.s. aðilar vinnumarkaðarins að samkomulagi sem ríkisstjórnin liðkaði fyrir með fyrirheitum um aðgerðir.

Nú hefur, einn aðili vinnumarkaðarins, einn atvinnurekandi, félagi í samtökum atvinnulífsins; Vátryggingafélag Íslands, seilst nokkuð langt. VÍS virðist ætla að reyna á þolrif þjóðarinnar með boðuðum iðgjaldahækkunum, sem hafa munu áhrif á vísitöluneysluverðs - verðbólgu. Ég skora á þá sem keppa við VÍS að fyrlga ekki fordæmi Vátryggingafélagsins, heldur axla ábyrgð og reyna frekar að stemma stigu við verðlagsþróuninni með því að bjóða betur, herða samkeppnina.

mbl.is VÍS hækkar iðgjöld 1. ágúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju

Til hamingju Ísland
Til hamingju Íslendingar
Til hamingju Háskóli Íslands
Til hamingju íslenskt þjóðfélag
Til hamingju íslenskt efnahagslíf
Til hamingju Sigrún Dóra og hinir 956 kandídatarnir
Til hamingju nýjir kennarar


mbl.is 1.522 fá prófskírteini í Laugardalshöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband